Fara beint í efnið

Uppgjör og endurútreikningur greiðslna frá TR

Endurútreikningur á lífeyrisgreiðslum þínum frá Tryggingastofnun fer almennt fram í lok maí ár hvert eftir skil á skattframtali.

Þá er farið yfir hvort þú hafir fengið rétt greitt frá TR á síðasta ári miðað við þín réttindi.

Almennar upplýsingar

Þú færð tilkynningu um niðurstöðu uppgjörs og endurútreiknings á Mínum síðum TR.

Þar getur þú séð hvort þú hafir fengið:

Þegar uppgjöri er lokið sendir TR uppfærða launamiða til skattsins með endanlegri niðurstöðu, í kjölfarið endurskoðar skatturinn álagningu ársins.

Ef þú færð ekki niðurstöður í maí

Það eru ekki allir greiðsluþegar sem fá uppgjör í maí en ýmsar ástæður fyrir því geta verið að þú fáir uppgjör seinna.

Algengustu ástæður fyrir því eru:

  • þú ert lífeyrisþegi og býrð í útlöndum,

  • þú skilaðir skattframtali of seint,

  • þú hefur ekki skilað skattframtali.

Ef þú vilt nánari skýringar á niðurstöðu uppgjörs getur þú sent okkur erindi í gegnum Mínar síður TR.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun