Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Gagnvirk tölfræði TR

Upplýsingar úr gagnagrunnum Tryggingastofnunar (TR) eru nú aðgengilegar á gagnvirku formi (PowerBI).

Tölfræði almannatrygginga getur meðal annars nýst:

  • almenningi,

  • stjórnvöldum,

  • rannsakendum,

  • hagsmunaaðilum,

  • fjölmiðlum.

Tölfræði TR er ætlað að gefa mynd af upphæðum greiðslna og fjölda viðskiptavina í helstu flokkum lífeyrisgreiðslna, svo sem ellilífeyris- örorku- og endurhæfingarlífeyris. Í flestum tilfellum er hægt að sundurgreina gögnin eftir tímabilum, aldri, búsetu og kyni.

Gagnvirk tölfræði TR

Upplýsingarnar koma beint úr gagnagrunni TR og uppfærast mánaðarlega og því geta tölur breyst á milli mánaða, svo sem vegna afturvirkra greiðslna. Mikilvægt er að hafa það í huga þegar samanburður er gerður.

Um er að ræða eftirfarandi fimm efnisflokka:

  • tryggingavísar

  • fjöldi greiðsluþega

  • fjöldi og hlutfall elli- endurhæfingar- og örorkulífeyrisþega

  • fjöldi og hlutfall með læknisfræðilegt mat

  • greining á tekjum lífeyrisþega hjá TR