Fara beint í efnið

Endurhæfingarlífeyrir

Umsókn um endurhæfingarlífeyri

Fylgigögn

Með öllum umsóknum þarf að fylgja:

  • læknisvottorð vegna umsóknar um endurhæfingarlífeyri

  • endurhæfingaráætlun

  • tekjuáætlun, sem þú fyllir út á Mínum síðum TR

  • upplýsingar um persónuafslátt sem þú skráir á Mínum síðum

Í einhverjum tilvikum er kallað eftir staðfestingu frá fagaðilum um að endurhæfing sé hafin eða hvenær hún hefst.

Auk þess þarf að skila

Ef launþegi:
  • staðfesting frá vinnuveitanda um að veikindaréttur sé fullnýttur

  • staðfesting frá stéttarfélagi með dagsetningu síðustu greiðslu

  • staðfesting frá Vinnumálastofnun með dagsetningu síðustu greiðslu

Ef sjálfstætt starfandi:
  • staðfesting frá Ríkisskattstjóra um að launagreiðslur hafi verið stöðvaðar

  • staðfesting frá stéttarfélagi með dagsetningu síðustu greiðslu

Ef nám er hluti af endurhæfingu:
  • staðfestingu á einingafjölda náms frá skóla

Ef vinna er hluti af endurhæfingu:
  • staðfestingu frá vinnuveitanda um starfshlutfall

Umsókn um endurhæfingarlífeyri

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun